Uppskriftaveitan geimSKONSUR

Snilldarlegir matreiðslutaktar sýndir og sannaðir

miðvikudagur, september 15, 2004

fiskiSÚPA

Laukur
Púrrulaukur
Sveppir ef vill (ég hef oftar sleppt þeim)
Paprikur
1 þurrkaður rauður chilipipar mulinn

Ofangreint mýkt upp úr extra virgin ólífuolíu og kryddað og rest bætt út í og látið sjóða

2 lítrar vatn (má alveg vera meira)
Brokkolí
Sellerí
Gulrætur
Kartöflur (ef nýjar - með hýðinu)
Fiskikraftur og grænmetiskraftur
Slurkur af hvítvíni
1 rjómaostur með kryddblöndu
Fiskur að eigin vali.

Krydda með pipar og því græna kryddi sem manni dettur í hug. Ég nota stundum Eftirlæti Hafmeyjunnar frá Pottagöldrum og Philip's sjávarréttakryddblöndu, og alls kyns önnur krydd.

Fjarlægja lárviðarlaufin, bæta rjómaostinum og fisknum út í undir lokin s.s. lax og lúðu, steinbít eða/og rauðsprettu. Ég læt fiskinn sjóða í súpunni, tek upp úr og hreinsa, ef ég er ekki með beinlaus stykki og skelli út í súpuna.

þriðjudagur, september 14, 2004

grænmetisSÚPA

Laukur
Púrrulaukur
Sveppir
Paprikur
1 rauður chilipipar fræhreinsaður í 3 - 4 bútum

Ofangreint mýkt upp úr ólífuolíu og kryddað og rest bætt út í og látið sjóða

2 lítrar vatn
2 lárviðarlauf
Brokkolí
Sellerí
Gulrætur
Kartöflur
Grænmetiskraftur
1 rjómaosti með kryddblöndu bætt í undir lokin

Krydda með pipar og því græna kryddi sem manni dettur í hug, lárviðarlauf og chilipiparbitarnir veiddir upp úr áður en borið er fram.

Fljótlegur fiskréttur.

Hráefni:

Kea Skyr 500 gr.
Findus Wok + Coconut & Lime (600 gr.)

Tikka Masala - Lemon & Coriander cooking sauce frá Patak's Original 400 ml.

Tvo fiskflök (ýsa eða steinbítur) roðlaus og beinlaus.

Aðferð:

Ofn hitaður í 200-240 C°

Grænmetið sett í eldfast mót
skyrið sett yfir
fiskurinn lagður ofan á
sósunni hellt yfir.

Sett í ofninn þar til þetta er tilbúið. 20-40 mín.

fimmtudagur, september 02, 2004

Tilbrigði við geimKARRÍið

Ferskur engifer ca 7 cm
Hvítlaukur, 6 stór rif
Ferskur stór rauður chilipipar, fræhreinsaður
Kjúklingabaunadós
2 kartöflur í teningum
Kúrbítur
2 gulrætur í ræmum
Sveppir
Rauð paprika
1 kúfuð msk. Kormakrydd frá Sharwood's
1 kúfaðar msk. Hot Madras frá Rajah
Kókosmjólk